top of page

VacuSport

Þrýstingsnudd fyrir Æðakerfið sem stóreykur blóðflæði í æðum og vöðvum

vacumed_edited.jpg

Hvernig vinnur tækið. 

Með VacuSport er hægt að minnka bjúgmyndun hratt og endanlega. Tæknin var upphaflega þróuð til að koma í veg fyrir blóðrásarvandamál hjá geimförum sem vinna í þyngdarlausu umhverfi.

Þar fer fram taktfast þrýstings- og lofttæmisnudd á æðakerfinu sem stóreykur blóðflæði í æðum og vöðvum þannig að svæði, sem hafa orðið fyrir meiðslum, jafna sig mun fyrr.

Með þessari meðferð fær líkaminn meira súrefni til sín og næringin skilar sér betur út í frumurnar.

Meðferðin kemur þér mun fyrr í betra form og bætir heilsuna með því að hraða endurhæfingu og endurnýjun þeirra svæða sem þurfa á því að halda. Meðferðin hefur sannað sig gegn

langvarandi verkjum eins og gigt, liðavandamálum og skertu blóðfæði

Úti í heimi meðhöndla sjúkraþjálfarar, læknar og aðrir meðferðaraðilar alls konar fólk, allt frá ungum íþróttamönnum til aldraðra einstaklinga með skert blóflæði, með Vacu Sport, enda eru áhrifin ótrúleg.

Vacumed

Lofttæmiþrýstingsnudd

fyrir handleggi, hnakka og axli

Vacumed_edited_edited_edited.jpg
Vacumed_edited_edited.jpg

Þjáist þú af krónískum verkjum,

bólgum eða bjúg?

Meðferðin hraðar á hagkvæman hátt endurnýjun og endurhæfingu á bólgumog stíflum.Með því að losa um og stórauka staðbundið blóðflæðið sem gerir það að verkum meðhöndlunarsvæðið nái skjótari bata t.d eftir slys, bjúg af öðrum meiðslum, tennisolboga  o.s.frv

Með lofttæmiþrýstingsnuddinu tekst á lífeðlisfræðilegan hátt að auka blóðstreymið staðbundið og sogæðakerfið nær betur að starfa og endurnýja sig. 

 

Þetta gerist á algjörlega sjálfvirkan og mjög fljótvirkan hátt í tækinu. Meðhöndluninn byggjast á mismunandi löngum hléum á milli undirþrýstings. Í gegnum þetta ferli er hægt að örva virkni slagæða, æða og sogæða á mismunandi hátt. 

Til að sjá sem skjótustu virkni meðferðarinnar mælum við með að koma í tækið jafnt og þétt yfir 3 - 4.vikna tímabil. 1-2x í viku. Ef um sogæðameðferð er að ræða er ekkert sem mælir á móti daglegri notkun tækisins ef nauðsyn krefur.

Við hjá Heilsu og útlit erum í samvinnu við heilsustofnunina Weyergans í Þýskalandi. Þar í landi er meðferðin vel þekkt af læknum og er mikið notuð á sjúkrahúsum í Þýskalandi.

bottom of page